VELKOMIN Í KRAUMA

Krauma er staðsett hjá Deildartunguhver, skammt frá Reykholti.

Krauma er í 97 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.

Komdu við í Krauma og upplifðu sjarma Vesturlands.

BÓKA NÚNA

DEILDARTUNGUHVER

Deildartunguhver

Vatnsmesti hver í Evrópu

Deildartunguhver í Reykholtsdal er vatnsmesti hver Evrópu. Hverinn er skýrt dæmi um þá ógnarorku sem býr í jörðinni, en kraumandi hverinn spúir upp um 180 lítrum af 100°C heitu vatni á sekúndu. Þessi náttúruauðlind hefur eflaust verið nýtt til þvotta og matarsuðu öldum saman en fyrir 80 til 90 árum var um 600 metra timburstokkur smíðaður til að flytja gufu að gamla húsinu í Deildartungu. Með gufunni mátti hita upp húsið og sjóða mat í gufupotti, auk þess sem íbúar gátu farið í heita sturtu og gufubað, sem þóttu einstök þægindi á þeim tíma. Deildartunguhver.


Jörðin Deildartunga hefur verið í eigu sömu ættar í yfir 200 ár en áður en Deildartunguhver var tekinn eignarnámi af íslenska ríkinu var hann í eigu Sigurbjargar Björnsdóttur (1886-1984). Hún var lengst af húsfreyja í Deildartungu og stýrði þar stóru heimili. Hún þekkti vel heilsusamleg áhrif heita vatnsins á bæði líkama og sál. Með Krauma er loks komið að því að hugmyndir Sigurbjargar séu orðnar að veruleika, og almenningi gert kleift að baða sig í þessu heilnæma og steinefnaríka vatni Deildartunguhvers.Deildartunguhver í Reykh.

  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button

Gufan

Þessi náttúruauðlind hefur án efa verið nýtt til þvotta og matarsuðu öldum saman en fyrir 80-90 árum var timburstokkur smíðaður sem flutti gufu að gamla húsinu í Deildartungu um 600 metra leið. Með henni mátti hita upp húsið, sjóða mat í gufupotti og íbúar gátu farið í heita sturtu og gufubað sem má telja einstök þægindi á þeim tíma.

Umhverfið

Um 1941 var garðyrkjustöðin Víðigerði byggð við hverinn og er hún enn í fullum rekstri þar sem ræktaðir eru tómatar. Matjurtarækt hefur líka verið stunduð í nágrenni við hverinn um áratuga skeið og vatn frá honum nýtt til að hita upp garðana.

Tunguskollakambur

Sérstakt afbrigði af burknanum skollakambi vex við hverinn. Tunguskollakambur finnst hvergi annars staðar í heiminum svo vitað sé. Það er verndun tunguskollakambsins að þakka að ekki var steypt yfir Deildartunguhver þegar hverinn var virkjaður í þeim tilgangi að hita upp hús á Akranesi og í Borgarnesi.

Share by: