VELKOMIN Í KRAUMA

Krauma er staðsett hjá Deildartunguhver, skammt frá Reykholti.

Krauma er í 97 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.

Komdu við í Krauma og upplifðu sjarma Vesturlands.

BÓKA NÚNA

HÓPEFLI FRAMUNDAN

HJÁ ÞÍNU FYRIRTÆKI?

Við hjá Krauma bjóðum upp á sérsniðin tilboð til fyrirtækja þar sem starfsmenn fá tækifæri að slaka á og kjarna sig í íslenskri náttúru.

Njótið ykkar í náttúrulaugum, Infrarauðaklefanum og vatnsgufubaðinu, eða í hvíldarherberginu við snark úr arineldi og fullkomnið svo daginn

með notalegri stund á veitingastaðnum okkar sem býður upp á dýrindis rétti úr fersku hráefni úr héraði.

Hafðu samband við okkur og fáðu sérsniðið tilboð að þínum þörfum.



Hafa samband

LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL

KJARNAÐU ÞIG Í KRAUMA

Í Krauma náttúrulaugum kemstu í beina snertingu við kjarna íslenskrar náttúru þegar þú baðar þig upp úr hreinu og tæru vatni úr Deildartunguhveri sem er kælt niður í gegnum varmaskipta. í laugunum er því eingöngu Hveravatn.


Fimm heitar laugar og ein köld umvefja þig með hreinleika sínum sem er tryggður með miklu vatnsrennsli og engum sótthreinsandi efnum.


Njóttu þín í vatnsgufunni, Infrarauða klefanum sem gefur af sé þærgilegan hita, sem nær djúpt inn í líkamann, útvíkkar æðar, örvar blóðrás, losar um spennu og róar líkamann eða í hvíldarherberginu við snark úr arineldi.


Fullkomnaðu daginn með notalegri stund á veitingastaðnum okkar sem býður upp á dýrindis rétti úr fersku hráefni úr héraði.



Láttu líða úr þér. Við erum til staðar allan ársins hring.

Skoða Instagram

DEILDARTUNGUHVER

Deildartunguhver í Reykholtsdal er vatnsmesti hver Evrópu. Hverinn er skýrt dæmi um þá ógnarorku sem býr í jörðinni, en kraumandi hverinn spúir upp um 180 lítrum af 100°C heitu vatni á sekúndu. Þessi náttúruauðlind hefur eflaust verið nýtt til þvotta og matarsuðu öldum saman en fyrir 80 til 90 árum var um 600 metra timburstokkur smíðaður til að flytja gufu að gamla húsinu í Deildartungu. Með gufunni mátti hita upp húsið, sjóða mat í gufupotti, auk þess sem íbúar gátu farið í heita sturtu og gufubað sem þóttu einstök þægindi á þeim tíma. 

HAFÐU SAMBAND

Share by: